|
|
03.02.2009 23:16:01 / sibbar
Já ,það er kannski kominn tími til að láta vita af sér(uhumm) .Það er nú lítið orðið um fína drætti hérna megin(eins og konan sagði),maður er bara að vinna ,sofa og gera lítið annað.Annars er nú meira að gera í vinnunni enda hættu fimm um mánaðarmótin (þessi sem tóku ekki skerðinguna á sig) svo nú er unnið til sex alla daga svo var unnið til ellefu á fimmtudaginn ,laugardaginn til fjögur og í dag til sjö svo það er nóg yfirvinna hjá okkur sem eftir eru enda bara sex eftir.Það var nú smá partý hjá liðinu á laugardagskvöldið og það var bara ágætt.(segi kannski meir seinna) er enn að jafna mig (hehe)Annars gengur allt sinn vana gang ekkert spennandi í uppsiglingu ennþá allavega.Við Keli hættum við að fara á þorrablótið fyrir Austan (á Eyrarbakka) enda hann að vinna aukavinnu og komst ekki .Af þeim úti er allt við það sama en eitthvað er þó farið að draga af Stjána það eru svo stíflaðar í honum æðarnar og er orðið erfitt að finna stað eða æð til að tengja nýrnavélina, það eru nú komin tvö ár síðan að þetta allt gerðist svo það er engin furða þótt eitthvað fari að gefa sig.En honum líður annars vel.Fanney er kominn í skóla er í fjarnámi og er ég stolt af dúllunni minni .Krökkunum gengur vel í skólanum og var Ragnar með tvær 10 sem er mjög gott og Þórdís með allt nema tvennt yfir meðaltali svo það eru stoltir foreldrar og amma á þessum bænum.Máney litla er farinn að láta vel í sér heyra og ef þetta heldur svona áfram þá verður hún frek eins og AMMAN og gefur sig nú ekki svo glatt.Jæja þetta er það sem er í gangi núna kannski kemur næsta blogg með styttra millibili . Kveð að sinni og hafið það sem best á Þorranum. Knúsarakveðja Sibba. Ég held að mikilvægustu verkin sem við vinnum,um allan heim,í öllu lífi okkar ,séu þau sem unnin eru innan fjögurra veggja heimilisins.Mæður og feður hvarvetna ,hver sem staða þeirra er í lífinu,geta lagt fram ómetanlegan skerf með því að sá þjónustulund í sálir barna sinna,þannig að börnin vaxi úr grasi með þeim ásetningi að koma góðu til leiðar. Að ógleymdri ástinni er hugrekki stærsta gjöfin.Við höfum öll tapað,margoft-en ef við kunnum að tapa ,lærum af því og reynum aðra leið-þá verður okkur vel ágengt. Kærleiksknús á línuna
»
07.01.2009 20:38:06 / sibbar
Gleðilegt ár kæru vinir nær og fjær og þökk fyrir það liðna.Það er yfirleitt venja að líta yfir liðið ár og sjá hvað fór vel og hvað illa,en ég ætla ekki að gera það núna.Jólin voru yndisleg og áramótin líka ,mikið etið og sofið, sólarhringnum snúið við hreinlega.Gjafir góðar og nýtilegar og alveg yndislegt að sjá ungviðið hoppa hæð sína þegar jólaóskin rættist,samt var ekki verið að bruðla neitt.Már fór í morgun til DK og er hálf tómlegt hérna núna,Keli bróðir kom á föstudaginn og fer á morgun svo þetta voru svona auka jól um helgina.Það var unnið á föstudaginn og var svolítil dræm mæting enda ekki nema von einn dagur og svo meira frí,maður var svona hálf latur enn mætti samt.Það er víst einhverjir nýir að byrja á mánudaginn og þá er gaman að sjá hvort mórallinn lagast eða verður eins .Annars nenni ég ekki að velta mér uppúr þessu ástandi öllu tek bara einn dag í einu og vinn mína vinnu eins vel og ég get,og vona bara það besta.Er nú ekki í miklu stuði til að skrifa ,hef um annað að hugsa eins og er og læt þetta því duga .Vonandi verð ég í betra stuði seinna og læt þá ýmislegt flakka .En þangað til góða daga og verið jákvæð út í ástandið þótt erfitt sé. Maður gerir það sem maður þarf-þrátt fyrir afleiðingarnar fyrir sjálfan smann,þrátt fyrir hindranir hættur og hótanir-þetta er grundvöllur allra siðfræði. Mér finnst vinnan vera kærleikur í raun og ef aðeins fleiri hugsuðu þannig um vinnu sína og störf,gæti þeim orðið svo miklu meira úr verki. Kærleikskveðja Sibba
»
16.12.2008 22:31:06 / sibbar
Sælt veri fólkið,ég verð víst aldrei bloggari ársins eða þannig það eru allir farnir á facebook svo maður hefur lítið að lesa núorðið.Reyndar er ég þar líka en kann ekkert á þetta þar fyrir utan er þetta tímaþjófur hið mesta,og er ég nú mikið í tölvunni en ef ég ætti að vera á facebook get ég alveg eins verið með sængina hérna í tölvuherberginu líka.Nei nei þetta er kannski ekki svona alvarlegt en sakna þess að geta ekki ráfað um bloggin eins og áður þótt maður kvittaði ekki alltaf undir.Héðan er allt við það sama fólk að komast í jólagírinn enda ekki annað hægt þegar snjór og frost er,á bara eftir 2jólagjafir þá er mín í góðum málum. Vinnan gengur sinn vanagang þótt fólk sé kannski ekki alveg sátt með allt sem er að ske bæði hvað varðar vinnu og svo allt þetta neikvæðna í þjóðfélaginu ,manni finnst þessir ráðamenn meira og minna spilltir allir sem einn og ekki bæta þeir upp jólafílinginn með öllum þessum hækkunum og sköttum.En jólin koma fyrir því og er ekki best að kafa oní sálartetrið og ná í gleðina og þessa friðartilfinningu sem fylgir jólunum og umstanginu í kring um þau ,vera eins og börnin með tilhlökkunina og spenninginn ofar pirring og áhyggjum.Geyma áhyggjur þar til eftir jól og takast á við þær úthvíldur og fullur friðar .(Amen)Og hananú þá er þetta komið frá alltaf gott að brussa þessu út úr sér þó á prenti sé.Annars tók ég þann pólinn á þessu að ég ætla mér að þrauka þetta þar til annað kemur í ljós og horfa björtum augum fram á við, ef annað verður upp á teninginn þá tek ég á því þegar að því kemur.Hef þetta ekki lengra að sinni nokkur gullkorn svona í restina. Jólin eru tími ástar og kærleika.Þá eiga allir að gleðjast og láta sér þykja vænt um hvorn annan. Það sem gefst best í lífinu er að gefast aldrei upp. Láttu gleði hljóma í tali þínu.Heimurinn er nógu dapurlegur þótt þín kvöl bætist ekki ofan á.Enginn vegur er grýttur allt til enda. Kærleiksknús til ykkra allra. Sibba.
»
25.11.2008 22:54:40 / sibbar
Jæja ,það er allt að gerast í þessu blessaða landi,sennilega tími til að stokka þetta allt upp og koma nýju og hreinu blóði inn.En það er nú ekki hægt nema að við fáum að velja persónu en ekki flokk,held að þetta ríkisbubbaeiginhagsmunapakk sé loksins búið að sýna hvað í því býr!!!!.Allir búnir að skýta upp á bak og meira til,OG HANA NÚ!!.Þá er ég búinn að koma þessu frá mér og allavega 5kílóum léttari.Annars er allt við sama heygarðshornið hérna megin,enn er vinna þótt maður hafi látið sig hafa það að lækka sig í launum eða þannig engin næturvinna (föst) og unnið til 4 frá og með 1des.En svona er þetta orðið á flestum stöðum í dag og ég verð bara duglegri að spá og nudda hef meiri tíma núna.Fólkið á bænum er allt við góða heilsu og lífið gengur sinn vana gang. Ég fékk skemmtilega hringingu um daginn og var beðinn að skrifa smá grein í blað sem kvenfélag Eyrarbakka er að gefa út nú um mánaðarmótin,já ég var jafn hissa og þið .Þetta átti að vera einhverskonar lýsing á upplifun minni er ég flutti þangað og hvernig mér leist á staðinn 12 ára gömul sveitastúlkan kannski ég leyfi ykkur að lesa það seinna(ef ég þori).Langaði bara aðeins að skrifa þótt það sé ekkert spennandi að gerast ,er ekki alveg tilbúinn að deila með ykkur því sem er að brjótast í mínum kolli og hvaða ákvörðun ég er búin að taka í því máli enda ekki alveg komin reynsla á það ennþá.En það er alltaf gott að fá smá sálarkonfekt svo við dembum okkur bara í það. Þeir sem horfast í augu við það sem er raunverulega frammi fyrir þeim, óþjakaðir af fortíðinni,ótruflaðir af framtíðinni það eru þeir sem lifa, þeim verður mest úr lífi sínu. Ef þér finnst þú of lítil til að hafa áhrif,prófaðu þá að hátta hjá moskítóflugu. Þangað til næst kærleikskveðja Sibba
»
10.11.2008 20:59:40 / sibbar
Waterloo og öll hin lögin JESUS minn mín var að missa sig á laugardagskvöldið. Já það var heldur betur óvæntar fréttir sem ég fékk á föstudagskvöldið,Fanney spurði hvort ég væri upptekinn á laugardagkvöldið (ég hélt ég ætti að passa ) og gaf ég ekkert út á það en sagði með seimingi að það færi nú eftir því hvað hún væri að pæla.Þá rétti hún fram miðana og spurði hvort ég vildi ekki koma á Abba Arrival tónleikana og mín stóð þarna með neðri vörina niður á höku og var orðlaus (og þá er nú mikið sagt).Þá voru hún og Keli bróðir búin að plotta sig saman og ég hélt að Keli væri bara að koma í heimsókn til systur sinnar (sem hann var líka).En við fórum sex saman ég og Keli og Fanney,Már og krakkarnir nema sú stutta sem var heima með afa.Fyrir utan góða tónlist og frábæra skemmtun var líka mjög gaman að fylgjast með fólkinu,sumir orðnir vel hifaðir og mikið dansað.En þetta kvöld verður seint gleymt.Annars er allt við sama heigarðshornið á þessum bænum,öllum í Formaco var sagt upp og okkur líka ,en það á að endurráða einhverja aftur og ég er allavega örugg fram í febrúar.Er með 3ja mán uppsagnafrest svo mín er ekkert að æsa sig svona rétt fyrir jólin tek svo bara á þessu eftir áramótn maðurinn sem ég bý með er ekki alveg að höndla þetta ,kemur síðan í ljós hvað verður.Það eru náttúrulega búið að vera skitu og ælupest á bænum en allir orðnir vel frískir ,samt er einhver kverkaskítur í mér og Máney sem er svolítið hás þessa dagana enda ekki furða hún lætur nefnilega í sér heyra (eins og amman).En látum þetta gott heita í bili smá sálarkonfekt svona í restina. Ef brotið er ,af hvaða ástæðu sem vera kann,gegn almennu viðmiði um siðgæði,á áberandi og fordómalaussan hátt,á einhverju sviði þjóðfélagsins,til dæmis í stjórnmálum,þá mun það sigla í kjölfarið,eins og nótt fylgir degi, að þau viðmið fara að láta undan á öllum öðrum sviðum,-í íþróttum,skemmtanalífinu,menntakerfinu,í hernaði, í viðskipt5um og í stjórn landsins. (Margret Halsey) Fannst þetta eiga vel við. Sá sem sigrar aðra er sterkur,sá sem sigrar sjálfan sig er voldugur.Sa sem er sáttur við hlutskipti sitt er ríkur. Lifið heil og verið jákvæð í öllu þessu neikvæðna. Sibba
»
25.10.2008 21:28:22 / sibbar
Þá er blessaður veturinn genginn í garð ,með frost og snjó og pínu roki.Það er margt búið að ske s´ðan síðast. Fórum í óvissuferð með vinnunni og var það alveg meiriháttar.Byrjuðum að skoða Formaco svo var farið með rútu og Hellisheiðarvirkjun skoðuð og endað á góðum mat í Skíðaskálanum . Og inn á milli voru leikir og þrautir,og allir í stuði og góðu skapi.Vinnan gengur sinn vanagang alltaf nóg að gera og verður það áfram enda erum við í stóru verkefni ,nefnilega með Háskólann þennan nýja.Annars eru búin að vera veikindi á bænum það eru flestir með upp og niður gang svo fólkið er hálf druslulegt þessa dagana.Við Þórdís og Ragnar höfum samt sloppið ennþá (7-9-13).Við mæðgur fengum okkur bás í Kolaportinu í dag og seldum slatta ,annars var ekki mikið um að vera sennilega of nálægt mánaðarmótum og allir að spara í kreppunni.En þetta var gaman og sennilega förum einhverntíma aftur.Enn ekki verður þetta lengra hjá mér núna bara rétt að pára það helsta og rita nokkur gullkorn svona fyrir veturinn. Margir halda að veraldlegur auður geri okkur hamingjusöm.Rétt er að hann færir okkur tímabundna velmegun en ríkur maður er ekki sá sem á meira heldur sá sem þráir minna. Hamingja er afleiðing þess að kunna fullkomlega að meta allt það sem lífið færir þér á hverju andartaki. Við lifum á því sem við fáum,en lífið er það sem við gefum. Farið varlega inn í veturinn....Sibba
»
12.10.2008 22:30:28 / sibbar
Ísland kæra Ísland ástkær fósturjörð... .. er nú allt á heljarþröminni,þar kom að því að öll þessi útrás og pappírspeningar gengju á vegg.Matadorið búið og við hin fátæki almúgi bölvum hver í sinu horni eins og venjulega ,hvar er samstaðan og baráttuviljinn eins og hann var fyrir 25-30 árum,ég bara spyr.en í allt annað það er mikið búið að vera í vinnunni ,vinnupartý sem var skemmtilegt, Keilukvöld sem var ekki alveg að gera sig fyrst en reddaðist ,og svo er einhver óvissu ferð á föstudaginn og eigum við að mæta í búningum.Það verður gaman að sjá það .En lífið heldur áfram í þessu ástandi ,en það er bara um að gera að vera jákvæður og þrauka þótt erfitt sé . Ekki ætla ég á hausinn ,hvernig svo sem ég redda því tek bara eitt í einu og læt þetta rúlla eins og venjulega. Öll mín samúð er hjá eldri borgurum og þeim sem áttu allan sinn sparnað í þessum bönkum.Mikið er ég fegin að hafa ekki átt neitt á þessum tímapunkti.Það er stundum ágætt að vera snauður.En öllu gríni fylgir alvara.Nú er bara að halda göngunni áfram og vera bjartsýnn.Veit ekki um hvað ég á að skrifa maður er svo orðvana og þurrausinn af öllu þessu krepputali og ásökunum út og suður að ég nenni ekki að pæla í því .Heldur reyna að koma með eitthvað uppbyggjandi og jákvætt.  Til þess að öðlast frið þegar eitthvað óheillavænlegt gerist skaltu íhuga möguleikann á því að einhverjir kostir geti leynst í stöðunni.Viðurkenndu aðstæður og lærðu af þeim.Þá verða tilfinningar þínar jákvæðar og þú finnur lausnir.Þú hefur þá breytt tapi í sigur. Láttu gleði hljóma í tali þínu.Heimurinn er nógu dapurlegur þótt þín kvöl bætist ekki ofan á.Enginn vegur er grýttur allt til enda. Verið góð hvort við annað ,kærleiksknús Sibba
»
12.09.2008 23:05:23 / sibbar
Jæja ég var víst klukkuð af Fanney og ætla að ljúka þessu af í einum grænum.
4 Sörf sem ég hef unnið. Fiskvinnsla Sláturhúsi (rista fyrir dindilinn)(hehe) Ráðskona í sveit Vélsmiðjuvinna.
4 bíómyndir sem ég held uppá.
Mamma Mía Jesus Christ Superstar Lord of the Rings Grease.
4 Staðir sem ég hef búið á Hólmavík Eyrarbakka. Garði Bandaríkjunum (Flórida)
4 Sjónvarpsþættir sem mér líkar. CSI NY House Euroika(held þaðsé skrifað svona) Grey's anatomy
4 Staðir sem ég hef heimsótt í fríum. Florida Malljoka Spánn Þýskaland
4 Síður sem ég skoða daglega fyrir utan bloggsíður. mbl.is vísir.is Eyrarbakki.is vf.is
Fernt matarkyns sem ég held uppá. Karrý réttur Ingu systir Jólamatur tengdasonarins ofnbakaður fiskur nýr fiskur með rúgbrauði
4 Bækur/blöð sem ég les mest. fréttablöðin Vikan gestgjafinn Andlegar og uppbyggjandi bækur
4 Staðir sem ég myndi helst vilja vera á núna. Suðursveit Florida (að heimsækja systkinin) Hólmavík Hvammstanga
4 Bloggara sem ég klukka. Álfhildur Sveina Peta Bessý Gunnrún:þ
»
28.08.2008 21:13:55 / sibbar
Enn sest maður niður og reynir að pína eitthvað út úr kollinum á sér,ekki það að það sé ekki búið að vera nóg að gera heldur hvernig ég á að koma þessu skammlaust á blað.Ég er náttúrulega enn að vinna í gluggum og hurðum og er nóg að gera hefur verið vinna á laugardögum og sennilega verða vaktaskipti svona einhvern tíma upp úr miðjum september.Það er alltaf fjör hjá okkur og er hópurinn mjög samstilltur og skemmtilegur.Emmi hefur verið í frí í sinni vinnu en ekki hér heima .Haldið þið að drengurinn hafi ekki smíðað sólstóla ,bekk og borð til að hafa á pallinum, jafnframt að loka pallinum og setja upp heitan pott.Ég er enn í sjokki yfir þessu öllu saman ,hélt að ég yrði að gera þetta ein (nei smá djók).Keli bróðir fer að vinna á Reyðarfirði í Álverinu ,hann var ekki nógu ánægður hjá Eimskip með svör í sambandi við sína vinnu svo hann byrjar núna í sept.Hann fjárfesti í fínum jeppa svo þá þarf ég ekki að skutla honum Austur (hefði verið gaman).Af þeim þarna úti er allt þokkalegt að frétta (þegar ég fæ fréttir) Stjáni er við það sama en samt er að safnast vatn í kringum hjartað og stafar það af álagi í sambandi við nýrnavélina en hann fer í vélina 3svar í viku.Þeir segja að það sé bara tímaspursmál hvenær hjartað gefi sig ,því ef hann er tekinn úr vélinni fer hann úr nýrnabilun og svo öfugt (þá gefur hjartað sig) en þetta getur tekið einhvern tíma.Arnar bróðir var lagður inn um daginn með blóðtappa í lunga og einhveja sjaldgæfa lungnabólgu,en hann er ókey en þarf að vera á pensilíni í heilan mánuð.Annars er allt annað í góðum gír að ég held,Fanney að byrja aftur að vinna,krakkarnir byrjuð í skólanum og lífið bara eins og það á að vera.Jæja nú er ég búin að bulla þessu út úr mér og læt þetta duga að sinni þar til næst dúllurnar mínar.Og svo smá gotterí í lokin. Sönn gleði sprettur ekki af hóglífi,auðsæld eða hrósi annara,heldur af því að hafa komið góðu til leiðar. Vertu bara þú sjálfur og talaðu af einlægni,frá hjartanu-það er allt sem við eigum. Knúsarakveðja Sibba
»
08.08.2008 23:02:43 / sibbar
Jú víst er ég hér enn,hef ekki nennt að skrifa eða hreinlega verið bara LÖT. Vikan í Suðursveitinni var alveg frábær ,þótt veðrið hafi ekki verið eintómt sólskin,sem sagt þoka mest allan tímann en milt og gott veður fyrir því.Við höfum komið þarna svo oft að þúfurnar og steinarnir tóku brosandi á móti okkur,það var margmennt og góðmennt.Þarna í þessum litla bústað gistum við 9 manns í sátt og samlyndi. Það var ýmistlegt brallað farið í gönguferðir,veiða í vatni sem heitir Þveit(já þetta er rétt skrifað),skoðað Lónið enn og aftur farið á Höfn,og í Skaftafell.Við meira segja löbbuðum langleiðina upp að Klukknagili sem er lengst þarna upp í fjöllum það elsta 72ja ára og það yngsta 7mánaðaog tók ferðin allan daginn .Það kemur svo á daginn að ég á ættir mínar að rekja þarna í Skaftafellssýslurnar og var langalang afi inn fæddur á Mýrum og Langalang amma er frá Smyrlabjörgum ,svo það er ekki nema von að ég sækist í þessa fallegu og friðsælu sveit.En heim varð maður að fara og vinnan beið. Systir hennar mömmu missti yngsta son um þetta leiti svo við systkinin fórum til hennar sunnudaginn eftir að við komum heim.Það er svo bara búið að vera vinna bæði í Idex og svo ég sjálf með mitt áhugamál.Krakkarnir fóru svo í smá ferð um landið og komu heim núna á miðvikudagskvöldið,svo við gömlu vorum ein og mikið var nú tómlegt.Hamstrarnir gera ekki annað en að fjölga sér svo nú á að gefa þá ef hægt er ,hún Auður vinkona Þórdísa hefur verið dugleg við að gefa þá fyrir krakkana á meðan þau voru í ferðalaginu enda voru þeir orðnir 14 eða fleira á tímabili.(hamstrarnir).Keli bróðir var hjá okur um verslunarmannahelgina og sátum við hér þrjú ,grilluðum og góndum á kassann. Það er að aukast hjá mér vinnan og sennilega unnið flesta ef ekki alla laugardaga fram að áramótum,við fengum það verkefni að vera með alla glugga og hurðir í nýja Háskólann.Ætli þetta sé ekki komið nógu mikið í þessa færslu ,vonandi verð ég duglegri að blogga og hef þær þa styttri en oftar . En smá góðgæti í restina. Þegar þú kemur þar sem mætast margir vegir og þú veist ekki hvern þú átt að velja,veldu þá ekki af handahófi heldur dokaðu við og hugsaðu.Dragðu andann og fylltu lungun lofti eins og þegar þú komst fyrst í þennan heim,láttu ekkert trufla þig en bíddu og haltu áfram að bíða.Vertu kyrr og hlustaðu í þögninni á hjartað þitt.Þegar það hefur talað til þín, stattu þá upp og fylgdu því. Þú verður að vita í hvaða höfn þú stefnir til þess að fá byrinn sem ber þig þangað. Sólar og kærleikskveðjur. Sibba
»
29.06.2008 22:51:17 / sibbar
Jæja ætli það sé ekki best að pára hérna smá .Héðan er allt gott að frétta ,Már komin heim með glæsilegar einkunnir og lífið komið í fastar skorður. Keli bróðir kom þann 13 og er á þessum stutta tíma komin með vinnu og herbergi í bænum ,enda þekktur fyrir það að vera ekk iað neinu drolli. Við systkynin skelltum okkur Norður á Hvammstanga um síðustu helgi og fórum á hið margrómaða hlaðborð við Hamarsrétt,þar var á boðstólum sjaldgæfir réttir úr sveitinni og þar um kring svo sem súrir selshreifar(uhmmm) saltað selspik ,hrognabollur,blóðpönnukökur (smakkaði þær ekki) súr egg,reykt sviðasulta og fleira í þeim dúr.Allt mjög gott ,við gistum hjá bróðir hennar mömmu og var það bara yndislegt,enda gaman að koma þarna norður þar sem maður var í sveit í 10 sumur.Svo var nú Sólseturshátíðin hérna um helgina og var ég að vinna bæði laugard og sunnud frá 1-6 við að spá og það var sko gaman þótt ég gleymdi mér alveg fyrri daginn og fékk mér enga pásu. Svo er annað í bígerð en læt ykkur vita af því þegar þar að kemur. Svo lífið er baaara skemmtilegt .Núna ætlum við að skella okkur í viku í sumarbústað förum þann 4 og komum þann 11Þar verða batterín og sálin fyllt af orku og kyrrðin tekinn inn á fullu.Hlakka alveg geypilega til. Ég ætla þá ekki að hafa þetta lengra í bili ,skelli inn smá hunangi fyrir sálina,þar til næst..  Að lifa í jafnvægi og hreinleika hugans er hið æðsta góða fyrir þig og fyrir heiminn. Það rætist alltaf sem maður hefur fulla trú á ;trúin kemur því til leiðar og ég held að ekkert rætist fyrrr en maður trúir því fullt og fast. Sólar og kærleikskveðja. Sibba
»
06.06.2008 00:04:56 / sibbar
Jæja ,maður fær bara allskonar skot á sig út af bloggskrifum. Ætli ég láti ekki vaða svona eitt lítið ,af því að það er nú að koma 17 júní.Hér er allt við það sama ,eða þannig.Fanney fór til Danaveldis 22mai og var yfir helgi svo ég var með börnin og hafði það bara gott,svo tekur hún sig til og fór í dag með öll börnin með sér og ætlar að vera yfir helgina.Svo það er ansi hljótt og tómlegt í kotinu en samt voða gott ,við þurfum stundum okkar speis eins og sagt er og þá er bara að njóta þess.Keli bróðir kemur til landsins þann 13 og er sennilega alkominn ,ef allt gengur upp ,eins og hann segir.Hann er búinn að fá nokkur atvinnutilboð svo ekki vantar honum vinnuna.En það verður gaman þegar hann kemur. Af vinnunni er það að frétta ,þetta kemur allt dagurinn er fljótari að líða enda nóg orðið að gera,það er mjög góður starfsandi þarna og svona léttur og skemmtilegur húmor í öllum.Við erum þarna fimm sem erum úr Garðinum eða eigum ættir að rekja þangað,svo hlutfallið er 5 Garðbúar 2 Pólverjar og 3 úr Reykjanesbæ.Þið getið nú ímyndað ykkur hverjir ráða mestu (haha)En læt þetta duga í bili smá gullkorn í restina fyri sálartetrið. Leyndardómurinn við að láta eitthvað skila sér í lífinu er fyrst og fremst,þráin til að það gerist;Síðan traustið og trúin á að það geti orðið; Þá að geyma þessu skýru og ákveðnu mynd í hugskoti sér og sjá hvernig allt leiðir hvert af öðru,án þess að nokkur efi eða vantrú geri vart við sig. Lífið býður óendanlega tækifæri til að vinna kærleiksverk.Nýttu þau öll... Þar til næst Kveðja Sibba
»
29.04.2008 20:34:57 / sibbar
Gleðilegt sumar allir bæði nær og fjær.Það er nú hálf haustlegt samt úti eins og er og spáin ekkert voða spennandi um helgina.Svo er 1mai að renna upp ,skyldu vera einhverjar kröfugöngur eða mótmæli þetta árið ?,Allvega er ærin ástæða fyrir mann að láta í sér heyra eins og allt er í dag.Ég er nú svo gömul að ég man alveg eftir kröfugöngum,ræðum frá verkalýðsforingjum og skemmtiatriðum þess á milli og svo fór maður alltaf í 1maí kaffi svona til að enda daginn.En það eru aðrar áherslur núna ,nú eru þetta allt saman fasteignasalar og peningamenn sem allt snýst um en ekki sauðsvartur almúginn sem verður að standa og sitja eftir þörfum hinna og endar svo með að borga allt góðærisfyllerýið.(og hananú,þá er þetta komið frá)Nei annars verðum við ekki bara að bíta á jaxlinn og bölva í hljóði eins og alltaf og tuða svo hver í sínu horni og á endanum kjósum við svo alltaf sama liðið ,hversu óánægð og fúl við erum eftirá.En svona er Ísland í dag! Annars er allt fínt af mér að frétta ,það er svona að glæðast í vinnunni (þá meina ég meir að gera) og dagurinn flýgur áfram.Á morgun er svo verksmiðjan opnuð með pomp og prakt já það eru merkir menn sem mæta, Árni Sigfússon og Össur Skarphéðinsson ásamt iðnaðarmönnum og öðrum vertökum í byggingargeiranum.Við verðum náttúrulega að sýna hvað við erum klár í þessu öllu og standa okkur í stykkinu.Þetta verðu svaka húllumhæ léttar veitingar eitthvað djassband og svo náttúrulega bjór til að skola öllum herlegheitunum niður.Þannig að ég læt ykkur kannski vita hvernig þetta var alltsaman eftir á.Annars er mjög góður mórall þarna og gaman að vinna maður er að setja saman glugga og hurðir og svo allskonar prófílar í kringum það alltsaman bara gaman.En að allt öðru held að þetta sé nóg í bili læt svo fylgja smá góðgæti fyrir sálina....... Sá er friðsæll sem er laus við allar væntingar og þarfnast ekki neins frá neinum.Hafðu frumkvæði og vertu örlátur.Sýndu fordæmi og leggðu eitthvað af mörkum.Þetta er lykillinn að því að vera ánægður og sáttur í öllum aðstæðum......saman er sannleikurinn og kærleikurinn það tvennt sem sterkast er í heimi hér og þegar hvort tveggja fer saman er það ósigrandi afl. Kærleiksknús til ykkar allra . Sibba
»
07.04.2008 23:16:01 / sibbar
Heil og sæl ,já ég er hér enn! Þá er að segja frá vinnunni ,þannig er að við eigum að setja saman glugga og hurðir úr áli,en þetta er svo til nýtt fyrirtæki að ég hef ásamt öðrum þarna gert mest lítið enn sem komið er.Og í ofanálag eru tveir hættir þannig að við erum bara 7 að vinna , en við fáum borgað fyrir þetta svo ég ætla að þrauka þarna eitthvað lengur og sjá hvort þetta lagast ekki.Það er mjög gott fólk að vinna þarna og góður andi svo kannski eru þetta bara byrjunarörðugleikar.Þetta fyrirtæki heitir IDEX gluggar og er útibú frá Formaco .Maður veit orðið vegalengdina í skemmunni ,drekkur óspart af kaffi og bíður eftir klukkunni,frá 8-6 en það hafa nú komið smá góðar gloppur inn á milli.Annars er allt gott af okkur að segja, Már farin til Danmörku og verður fram í enda júní,baðherbergið eiginlega klárt ,vantar innréttinguna en hún kemur um mánaðarmótin svo lífið er bara ljúft.Máney litla dafnar og er alltaf brosandi en hún veit nú alveg hvað hún vill sú stutta þótt ung sé,ákveðin eins og bróðir sinn.Læt þetta duga að sinni ,þangað til næst að ég fæ þörf til að skrifa....smá gott í lokin.....Allt sem þú geymir innra með þér mun ósjálfrátt birtast.Gættu þess því að varðveita alltaf innra með þér það sem þér hefur auðnast.Það mun birtast í augum þínum,orðum og hegðun og þú verður fær um að hafa stórkostleg áhrif á aðra.Jafnvel smæsta góðverk segir “Mér stendur ekki á sama”,eða “Þú skiptir mig máli” eða “Ég hugsaði til þín.” Og gleður hjartað. Gangið brosandi inn í sumarið og njótið lífsins. Vorkveðja Sibba!
»
20.03.2008 15:51:39 / sibbar
Jæja er ekki best að skrifa eitthvað áður en það verður svo mikið hjá manni að gera .Já ég er komin með nýja vinnu og á að byrja 25 mars, vinnutíminn er frá 8-18 alla daga nema föstudaga og launin eru góð.Þetta er fyrirtæki sem gerir álglugga og hurðir og heitir Formaco.Af öðru er að segja þá er allt komið á baðinu nema innréttingin hún flæktist eitthvað í kerfinu en vonandi kemur hún eftir páska,svo nú liggur maður bara í baði og hefur það næs.Annars er allt við það sama allstaðar nema að sennilega flytur Keli bróðir til landsins í maí-júni,hann er sennilega alkomin og mikið hlakkar mig til.Svo yfir í allt annað við mæðgur fórum í bæinn á þriðjudag svona smá rúnt við kíktum við í Smáralindinni og þá var svaka útsala í leikbæ ég sá mér leik á borði því barnaafmælin byrja í júni að versla bara fyrir allan skarann ,þegar ég var byrjuð að tína í körfuna sé ég að afgreiðsludaman er að taka niður skiltin (búðin var að hætta) svo ég spyr hhvað er að ske,þá segir hún að eigendurnir væru hættir við að hætta og það sé engin útsala .Ég starði bara á hana tók dótið úr körfunni og labbaði út,á miðjum degi klukkan fjögur ætli þetta megi ? En svona er þetta víst kannski er næsta útsala bara í helmingnum á versluninni og færist svo til eftir behag hver veit.Nú gerir maður sig bara klárann í páskaátið og afslöppunina sem framundan er bætir á sig fáeinum grömmum sem allir eru svo ákafir við að ná af sér og líður bara vel,það verða einhverjir að vera með hold utan á sér .Ætla ekki að bulla meira læt ykkur vita hvernig vinnan tekst og hvernig mér líkar ,þar til næst. Friðurinn er á enda þegar þú verður tilfinningalega flæktur inn í aðstæður.Getir þú séð aðstæður líkt og óháður áhorfandi hjálpar það þér að halda jafnvægi þínu og ró.Það er besta leiðin til að komast að niðurstöðu í ákvarðanatökum í hvaða aðstæðum sem er. Hamingjan er fólgin í því að geta kallað mistök sín reynslu. Gleðilega Páska öll sömul og hafið það gott í fríinu. Sibba
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
Dagsetning
8. febrúar 2012
Heimsóknir
Í dag: 9 Alls: 32409
|